Fara í upplýsingar um vöru
Öræfarós pastel
4.250 ISK
Ekki hægt að sækja
Útsaumspakki.
Byggt á munstri úr sjónabók Jóns Einarssonar bónda og hagleiksmanns í Skaftafelli á 18. öld. Bókin hefur að geyma mörg munstur ætluð til hannyrða og þykir mikil gersemi. Hún er varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands. Munstrið er hluti af margbrotinni/þríbrotinni áttablaðarós, afbrigði sem ekki þekkist utan Íslands svo vitað sé.
Stærð á útsaumi 10 x 10 sm. Efnið í púðann fylgir ekki. Vel má ramma myndina inn eða setja hana á t.d. tösku.
Fæst í þrem mismunandi litasamsetningum.
Selt í plastpoka með rennilás og í kassa.
Aðferð: fléttusaumur / gamli krosssaumurinn
Í pakka: efni, ullargarn, nál, munstur og leiðbeiningar á fimm tungumálum.
Aðferð: fléttusaumur / gamli krosssaumurinn