Fara í upplýsingar um vöru
Öræfahnútur
5.750 ISK
Ekki hægt að sækja
Útsaumspakki.
Byggt á munstri úr sjónabók Jóns Einarssonar bónda og hagleiksmanns í Skaftafelli á 18. öld. Bókin hefur að geyma mörg munstur ætluð til hannyrða og þykir mikil gersemi. Hún er varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands.
Hnútar af ýmsum gerðum voru algengir í hannyrðum.
Stærð á útsaumi 13,5 x 13,5 sm. Efnið í púðann fylgir ekki. Vel má ramma myndina inn eða setja hana á t.d. tösku.
Fæst í tveim litasamsetningum.
Selt í plastpoka með rennilás og í kassa.
Í pakka: efni, ullargarn, nál, munstur og leiðbeiningar á fimm tungumálum.
Aðferð: fléttusaumur / gamli krosssaumurinn