Happapeysan

Happapeysan

1.200 ISK
Fara í upplýsingar um vöru
Happapeysan

Happapeysan

1.200 ISK

Happapeysan - Styrkur Sameining Gleði

Uppskrift á prjóna no 6. Stærðir S-XXL

Rúnirnar

Rúnir eru forn tákn sem bæði voru notuð sem hljóðtákn til að skrifa texta og einnig sem einstök tákn með ákveðna merkingu. Til eru heimildir um notkun rúna sem eru eldri en Nýja Testamentið en þær voru síðast notaðar svo vitað sé, á Íslandi, fyrir um 300 árum. Rúnastafrófið er vel þekkt enn þann dag í dag en merking einstakra rúnatákna glataðist að mestu með þeim sem þau þekktu.

Rúnir voru notaðar við gerð handrita, til að merkja ýmsa muni og til að hafa áhrif á atburði. Þær voru oft skornar í verndargripi, á glös, vopn, yfir dyr og á skip. Þær voru notaðar til persónulegra þarfa og almennra, til illra og góðra verka, til að hafa áhrif á veður, uppskeru, ástamál og til að hafa áhrif á heilsu og frjósemi. Þær voru einnig notaðar til að sjá inn í framtíðina og til að tala við guðina. Meistarar rúnanna voru mikilvægt fólk á sínum tíma, bæði karlar og konur.

Árið 1982 gaf Ralph Blum út Bókina um rúnir. Hann hafði safnað upplýsingum um rúnir og skilda hluti hvaðanæva að og þróað aðferð til sjálfsskoðunar með hjálp rúna.Þessa bók hafði ég til hliðsjónar þegar ég gerði munstrið í þessa lopapeysu. Rúnirnar sem ég valdi henta vel til að prjóna og hver þeirra hefur sína jákvæðu merkingu

Þegar peysan var tilbúin langaði mig til að vita hvað táknin merktu samkvæmt stafrófinu og kom þá í ljós orðið WUL. Auðvelt er að sjá að orðið líkist ULL á íslensku, WOOL á ensku, og keltneska orðinu WULLA! Vonandi gengur þér vel að prjóna peysuna og sá sem í hana fer þarf engu að kvíða því hann verður umvafinn ULL og góðum fyrirbænum!

Alda Sigurðardóttir

You may also like